18janúar

kíkið á blogspot

Er komin aftur á blogspot

Nýja síðan mín er :

http://www.kristinbirna.blogspot.com
18. janúar 2009 klukkan 15:03
Kristín Birna Ólafsdóttir
Engin athugasemd
01janúar

Gleðilegt nýtt ár

  Gleðilegt nýtt ár allir saman og takk fyrir það gamla.
Ég hafði það mjög gott í gærkvöldi, og allan gærdag, fyrir utan veikindin.
Ég var orðin veik áður en ég kom heim og ekki hjálpaði nú ferðalagið því. Ég kom samt heim á þriðjudaginn og var mætt á æfingu á miðvikudaginn, ekkert mál (þó það hafi nú ekki verið sniðugt). Ég gerði þó ekki mikið, en nóg til þess að ég vaknaði næsta morgun næstum raddlaus. Ég semsagt eyddi gamlársdag, og kvöldi, raddlaus - lovely! Ég lét það þó ekki skemma fyrir mér skemmtunina, og borðaði góðann mat, sprengdi sprengjum í loft upp, og fór með Mark upp í Grafarholt til að hann sæji betur brjálæðið hérna hjá okkur Íslendingum!! Ég var svo bara heima í róegheitum mestalt gærkvöld, en rölti til Ingu í partý hjá fjölskyldunni henni....Það var  rosa gaman!Smile

Nú ligg ég upp í rúmi, nývöknuð, og bjartsýn fyrir nýja árið sem var að ganga í garð! Þrátt fyrir að það byrji ekki vel (ég er ennþá raddlaus, bókstaflega, og mjög líklega með hita, hóstandi upp slími), hef ég góða tilfinningu fyrir þessu ári

2009 Glasses



01. janúar 2009 klukkan 11:49
Kristín Birna Ólafsdóttir
2 athugasemdir
30desember

komin heim

Mikið rosalega er ég léleg að blogga.

En það hefur mikið gengið á undanfarið. Hluti af fjölskyldunni kom í heimsókn og við höfðum það alveg ógurlega gott!! Við komum svo öll heim í gærmorgun sem er líka alveg ógurlega gott ;)

Það er æðislegt að vera komin heim. Laughing

Ég ætla ekkert að hafa þetta lengra. En ég vil benda á það að ég er búin að skipta um símafélag. Ég er ennþá með sama númer, en er búin að tína öllum númerum sem voru á gamla símakortinu mínu. Þannig að ef fólk vil ná í mig má það endilega smsa mig eða hringja í mig :)

30. desember 2008 klukkan 22:01
Kristín Birna Ólafsdóttir
Engin athugasemd
08desember

Lyftingar

Það drífur ekki margt mína daga þessar vikurnar nema próflestur. Rosalega hressandi alveg hreint. Ég á núna bara eina og hálfa viku eftir og þá er ég BÚIN með þessa önnLaughing Þetta hefur verið ansi löng önn en er loksins á enda!
Æfingar fara að sjálfsögðu ekkert í pásu þrátt fyrir prófin. Þær ganga ennþá vel. Ég fékk reyndar í ökklann um daginn og var of fljót á mér að byrja að hlaupa þannig að mér er ennþá illt. En það lagast nú bráðum þar sem ég hef verið ógurlega dugleg að passa mig undanfarið.
Ég hef verið þokkalega dugleg að setja inn hlauaæfinga hérna á blogginu en hef held ég aldrei sett inn lyftinaræfingarnar. Hér kemur lyftingaræfingin sem ég tók á fimmtudagsmorgun (ég lyfti á þriðjudags og fimmtudagsmorgnum):
skokka mílu í upphitun. Teygji og geri magaæfingar.
Deadlift 5x3 - 93kg-93kg-110kg-120kg-125kg
á milli setta hoppaði ég 3xyfir grind, og gerði 4xpistols á hvora löpp (hnébeigja með annari löpp á meðan þú heldur hinni löppinni fram).
Eftir þessi sett tók ég annað sett: hlaupadrilla með teygju x10, armbeygjur með lóðum 10x12kg, 15xswings (swings með Kettlebell Bjöllu) - gerði þetta sett 4sinnum.
Ég kláraði svo æfinguna með því að fara í mjaðmatæki.
Seinni partinn þennan dag kastaði ég smá kúlu og hljóp slatta grind (stutta grind).

En nú er ég að fara í skólann. Datt í hug að skrifa hingað inn meðan ég borðaði morgunmatinn minn.
08. desember 2008 klukkan 16:08
Kristín Birna Ólafsdóttir
4 athugasemdir
30nóvember

komin heim

Ég er komin aftur heim frá Vegas. Þetta var algert ævintýri og höfðum við það alveg rosalega gott!
Við gistum heima hjá vini hans Mark sem er í Vegas að læra að verða tannlæknir.
Fyrsta daginn okkar þarna var helli,helli demba. Jújú alveg típískt að þegar ég kem í eyðimörkina fæ ég rigningu Wink Hér geti þið séð hversu mikil rigning var þarna:
rigningvegas

Við röltum um Las Vegas strip (aðalgötuna) þetta sama kvöld:
strip

Ég hitti þar góðkunningja minn Pavarotti:

pavarotti

og við kíktum í búðir, fatabúðir og dótabúðir:

piano

og auðvitað röltum við um nokkur Casino:

mark

Næsta dag fórum við í túrista ferð upp í Hoover virkun en það er stærsta virkjun í Bandaríkjunum og ein af þeim stærstu í heiminum...Þetta er ekkert smávegis mannvirki!

hoover

Hoover1

Það er verið að byggja nýja brú þarna yfir:

bruin

Eftir túristaferðina fórum við í eitt af casinoinum í Vegas, The Wynn, sem er eitt af aðal kasínóunum þarna. Vinur hans Mark á vinkonu sem vinnur þar og við fengum sæti í einum af setustofunum þar og hún þjónustaði okkur allt kvöldið og færði okkur það sem við vildum frítt!

wynn

Hér eru ég, Mark og vinur hans Casey:
(ég vil taka það fram að hvorugur þeirra reykir vindla. Þeir fóru á eithvað powertrip því þeir fengu allt frítt, en drápu í vindlunum eins fljótt og þeir kveiktu í þeim).

wynn1
30. nóvember 2008 klukkan 19:13
Kristín Birna Ólafsdóttir
6 athugasemdir
27nóvember

Vegas babie

Er komin til Las VegasLaughing
Það tók ekki nema 5 tíma að komast hingað keyrandi... Ég skil ekki af hverju ég hef ekki drifið mig hingað áður!

Ég verð dugleg að taka myndirWink

27. nóvember 2008 klukkan 01:04
Kristín Birna Ólafsdóttir
2 athugasemdir
20nóvember

Vegas

Eg veit stundum ekki alveg af hverju eg er med bloggsidu. Eg hef aldrei verid mikid fyrir ad deila mer og minum hugsunum med folki sem eg tekki ekki mikid. En eg vil ad vinir og fjolskylda heima geti fylgst med mer a medan eg er svona langt i burtuSmile
Undanfarid hef eg verid mjog lot ad skrfa hingad inn en eg aetla ad reyna ad laga tad...og reyna a.m.k. ad koma med blogg tvisvar i viku. En vid sjaum til.

Af mer er tad ad fretta ad eg nadi ad snua a mer okklann fyrr i vikunni, eg er ad kafna i skolavinnu, en er ad odru leiti anaegd med lifid.
Aefingar ganga ennta vel. Tratt fyrir ad hafa meitt mig i okklanum fyrr i vikunni tok eg aefingu i gaer og i dag. I gaer hljop eg 4x400metra med sidustu 200metrana yfir grindur. Eftir tad hljop eg 3x120metra. I dag var lett skokk og svo grindardrillur.

Eg er farin ad hlakka til ad komast i sma pasu en i naestu viku er Takkargjordarhatidin svo ad tad verdur long helgi.
Vid Mark aetlum barasta ad skella okkur til Las Vegas ta helgina. Tad er ekki nema c.a.5 klukkustunda akstur tangad og vid erum med fria gistingu svo tetta aetti ekki ad kosta okkur mikid. Laughing

Svo er nuna komid a hreint ad mamma, Steinthor, Reynir og dottir hans Agnes Sjofn koma og heimsaekja mig um jolin...jibbi!! Eg hlakka ordid mikid til tess ad fa tau hingad!! Eg aetla svo heim um aramotin med teim sem verdur frabaert! Oh eg hef saknad Islands og vina og fjolskyldu.

Tannig ad eg hef fullt til tess ad hlakka til - Vegas, Heimsokn fra fjolskyldunni, og svo tad ad koma heimLaughing

En nu tarf eg ad fara ad koma mer i tima tannig ad eg hef tetta ekki lengra

20. nóvember 2008 klukkan 02:10
Kristín Birna Ólafsdóttir
7 athugasemdir
09nóvember

vikan sem var að líða

Vikan sem var að líða gekk ekkert súper æfingalega séð. Aðalega vegna þess að ég fékk krampa í haminn á laugardaginn fyrir viku síðan. Ég tók þessa viku þess vegna frekar rólega en náði að hreyfa mig helling. Æfingin í gær tók vel á, en var þó ekki eins erfið og ég hélt hún myndi vera þegar ég heyrði hvað það var. Ég hljóp 4x350metra með 8mín hvíld, og svo 6x120metra stílspretti með 80m labbi á milli. 350metrarnir tóku jú vel á. Ég er ekki farin að hlaupa í gaddaskóm en flestar stelpurnar í liðinu gerðu það í gær. Ég er að reyna að gefa ökklunum (og núna síðustu vikuna, hamnum) eins mikið break og ég get. En ég hljóp þessa spretti alla á c.a 55sek sem var alls ekki svo erfitt. Ég súrnaði aðeins en var fljót að jafna mig á milli sprettanna.

Í dag var ætlunin að fara á brimbretti, veðrið er hins vegar ekkert til að hrópa húrra yfir svo að við ætlum að bíða með að fara þar til í fyrramálið eða seinni partinn í dag.

Skólinn gengur ágætlega. Í byrjun annarinnar náði ég að klúðra nokkrum littlum prófum sem ég þarf svo að bæta upp núnaUndecided en það gengur ágætlega að vinna þetta upp. Ég var í tveim stórum prófum í síðustu viku sem gengu bara vel. Enda hef ég ekkert verið að gera nema læra! Ég er kominn með miiikinn skólaleiða og get ekki beðið eftir því að klára. Venjulega er ég pínu nörd og hef gaman af því að læra heima og mæta í tíma, núna hins vegar, er mikil píníng fyrir mig að þurfa að annaðhvort líta í bók eða mæta í tíma. Ég næ nú samt alveg að halda þetta út á þrjóskunni og ætla mér að fá góðar einkunnir síðasta árið mittSmile
09. nóvember 2008 klukkan 15:52
Kristín Birna Ólafsdóttir
7 athugasemdir
07nóvember

hætta?

Það ríkir mikil gleði í Bandaríkjunum núna þar sem forestakosningum er lokið, og Obama sigraði með miklum yfirburðum.
Það er auðvitað ekki gleði allstaðar, íhalssamir Bandaríkjamenn eru fokillir. Það er mikil hræðsla um að eithvað slæmt geti gerst útaf þeim öfgamönnum. Obama (eins og allir forsetar Bandaríkjanna) er talinn vera í mikilli hættu. Ég held persónulega að það verði allt í lagi með hann því það verður mikil lögregufylgd og gæsla í kringum hann og fjölskyldu hans.

En jæja, ég er að fara í próf á morgun svo ég ætla að fara að koma mér.
07. nóvember 2008 klukkan 00:57
Kristín Birna Ólafsdóttir
Engin athugasemd
05nóvember

Gleði, gleði

Ég er að horfa á sjónvarpið núna og það var verið að tilkynna sigur Barack Obama! Mikið rosalega er ég ánægð að sjá þetta!Laughing
Ég er ekki bara ánægð með þessa niðurstöðu vegna þess að Obama er betri frambjóðandinn af þeim tveim sem var verið að kjósa um (að mínu mati), heldur stendur þessi sigur fyrir svo miklu miklu meira en bara sigur í forsetakosningum.
....æj... Það er allt of mikið að gerast núna til að ég geti einbeitt mér að blogginu...Obama er að fara að tala....
framhald seinna

05. nóvember 2008 klukkan 04:28
Kristín Birna Ólafsdóttir
Engin athugasemd

Aðalvalmynd

Auglýsing

Ég.....

heiti Kristín Birna Ólafsdóttir og stunda nám í Sálfræði við San Diego State University í Kaliforníu. San Diego er alger draumaborg og ég nýt lífsins hérna en það jafnast samt ekkert á við Reykjavíkina góðu!