Lyftingar

Það drífur ekki margt mína daga þessar vikurnar nema próflestur. Rosalega hressandi alveg hreint. Ég á núna bara eina og hálfa viku eftir og þá er ég BÚIN með þessa önnLaughing Þetta hefur verið ansi löng önn en er loksins á enda!
Æfingar fara að sjálfsögðu ekkert í pásu þrátt fyrir prófin. Þær ganga ennþá vel. Ég fékk reyndar í ökklann um daginn og var of fljót á mér að byrja að hlaupa þannig að mér er ennþá illt. En það lagast nú bráðum þar sem ég hef verið ógurlega dugleg að passa mig undanfarið.
Ég hef verið þokkalega dugleg að setja inn hlauaæfinga hérna á blogginu en hef held ég aldrei sett inn lyftinaræfingarnar. Hér kemur lyftingaræfingin sem ég tók á fimmtudagsmorgun (ég lyfti á þriðjudags og fimmtudagsmorgnum):
skokka mílu í upphitun. Teygji og geri magaæfingar.
Deadlift 5x3 - 93kg-93kg-110kg-120kg-125kg
á milli setta hoppaði ég 3xyfir grind, og gerði 4xpistols á hvora löpp (hnébeigja með annari löpp á meðan þú heldur hinni löppinni fram).
Eftir þessi sett tók ég annað sett: hlaupadrilla með teygju x10, armbeygjur með lóðum 10x12kg, 15xswings (swings með Kettlebell Bjöllu) - gerði þetta sett 4sinnum.
Ég kláraði svo æfinguna með því að fara í mjaðmatæki.
Seinni partinn þennan dag kastaði ég smá kúlu og hljóp slatta grind (stutta grind).

En nú er ég að fara í skólann. Datt í hug að skrifa hingað inn meðan ég borðaði morgunmatinn minn.
08. desember 2008 klukkan 16:08
Kristín Birna Ólafsdóttir
ólafur gauti skrifar ...
þú ert alveg mögnuð :)
09. desember 2008 klukkan 05:18
ólafur gauti skrifar ...
kristín án gríns að þá væri ég til i að kikja á þig i lok februar. byrjun mars þegar arnold classic verður i los angeles held ég . ef mamma splæsir tvisvar sinnum á steinþór að þá hlýtur hun að vilja splæsa einu sinni á mig. ertu til i að kikja með mér á þetta einn eða tvo daga . það er að visu soldið dýrt en það verða nokkrir íslendingar að horfa og einn eða tveir að keppa :) þyrftum að panta hótel . hvað kostar ein svona ferð fyrir mig. kannski viku-10. daga. ég væri rosa til i það . MARK myndi bara koma með og sjá alla snillingana á arnold classic :) . spurðu mömmu út i þetta . það er betra að þú talir hana til og fáir hana til að splæsa á mig viku til 10.daga ferð til usa i lok februar . með bestu kveðju . þinn bróðir ÓLAFUR GAUTI :)
10. desember 2008 klukkan 02:51
Kristín Birna skrifar ...
Ég kiki á þetta Gauti :)
10. desember 2008 klukkan 18:18
Kara skrifar ...
Já það eru engar smá æfingar stelpa!!!
Þú ert snillingur :D
16. desember 2008 klukkan 00:30

Skrifa athugasemd

Ađalvalmynd

Auglýsing

Ég.....

heiti Kristín Birna Ólafsdóttir og stunda nám í Sálfrćđi viđ San Diego State University í Kaliforníu. San Diego er alger draumaborg og ég nýt lífsins hérna en ţađ jafnast samt ekkert á viđ Reykjavíkina góđu!