Kreppan á Íslandi er í heimsfréttum. Það hafa allir sem fylgjast eithvað með fréttum heyrt af ósköpunum á Íslandi. Meira segja fólk hérna í San Diego spyr mig hvernig ég hafi það, hvernig fjölskyldan hafi það osfrv.
Þessi kreppa hefur lítil áhrif á mig. Að sjálfsögðu hefur þetta haft áhrif á fjölskylduna mína eins og flestar/allar fjölskyldur á Íslandi en ég finn ekki mikið fyrir þessu (nema hvað allt er orðið dýrt hérna í San Diego, en ég get nú ekki kvartað yfir því miðað við hvernig margir hafa lent í því).
Ég hef blendnar tilfinningar um það að vera svona langt í burtu núna. Ég hef verið með heimþrá þessa önnina, meira en áður, en núna, verð ég barasta að segja, að ég er ánægð með að vera svona langt í burtu frá stressinu heima! Fyrir næstu skólaönn ætla ég að reyna mitt besta að fá mér vinnu. Ég veit ekki alveg hvað ég ætla að reyna að gera. Ég geti fengið vinnu á campus en það er ekki vel borgað. Ég hugsa að ég reyni að fá viðskiptavini sem vilja koma í einkaþjálfun til mín - það er auðvelt að gera það hérna í San Diego, maður þarf ekki tækjasal til þess vegna veðurs og góðrar aðstöðu út um allt til að taka góðar æfingar, þannig að ég get auðveldlega gert það án þess að vera með "vinnuleyfi" hérna í USA. Við skulum nú sjá til hvernig það fer samt.
En jæja, ég ætla að snúa mér aftur að lærdómnum, nóg um vangaveltur í dag
02. nóvember 2008 klukkan 19:48
Kristín Birna Ólafsdóttir 3 athugasemdir
Ég held ég hafi tekið eina erfiðustu æfingu lífs míns í gær og ég hef tekið þær margar erfiðar. Ég veit ekki hvort það var dagsoformið, sú staðreynd að ég lyfti sama morgunn, hitinn og sólin...eða bara æfingin sjálf sem var svona rosalega erfið. Ég lyfti í gærmorgun en seinni partinn (eða 4tímum seinna) hljóp ég 2x600m og 6x300m. Allt auðvitað á flatbotna skóm. Tímarnir áttu að vera 1.54 í 600, 54 í fyrstu þrem 300 og 48 í seinni þrem 300metrunum. 12mín hvíld milli 600metranna, 1mín hvíld milli fyrstu 300metranna og 5mín hvíld milli seinni 300m. Ég hljóp á 1.53 - 1.48 - 54 - 52 - 51 - 48 - 47 - 46.... Eftir fjórða 300metra sprettinn fékk ég aðeins lengri pásu en 5mín þar sem ég var að skila af mér hádegismatnum
Annars var ég að koma úr prófi. Það gekk bara vel :) Mikill léttir að vera búin með þetta próf en ég þarf að skila verkefni á morgun sem ég hef ekki byrjað á þannig að ég ætti kannski að hætta að blogga og koma mér að verki.
30. október 2008 klukkan 05:17
Kristín Birna Ólafsdóttir 2 athugasemdir
Nú eru alvöru æfingarnar byrjaðar. Ekki þessi endalausu götuhlaup og þrek (jú við höldum áfram að gera það en tökum núna líka æfingar á brautinni). Við byrjuðum vikuna á léttri æfingu á mánudaginn. Bara smá langstökksæfing, og svo létt götuhlaup. Á þriðjudaginn lyftum við um morguninn en seinni partinn var æfing dauðans. Já það er langt síðan ég fann fyrir svona mikilli þreytu/ógleði/hausverk eftir æfingu. I love it! Æfingin samanstóð af 200-500-400-300-200-200-200-200 með 200metra labbi á milli (nema bara 100m labb milli 200metra sprettanna). Þetta var alls ekki svo hratt - ég átti að hlaupa þetta á 17sek pace (s.s. 17sek á hverja 100m), en mín byrjaði auðvitað á því að hlaupa fyrsta 200metra sprettinn á 29sek og það sat í mér restina af æfingunni þar sem ég fékk ekki nægja hvíld...hehe.... En svo hljóp ég 500metranna akkurat á 85sek sem var návkvæmlega tíminn sem ég átti að ná. 400metrana hljóp ég á 67sek, 300metrana á 48sek og 200metrana á 32-31-31-30sek. Ég náði rétt að skokka niður og teygja. ég lagðist svo í jörðina og var þar í c.a hálftíma...HAHA... gat ekki hreift mig útaf hausverk og þreytu. En það ótrúlegt hvað manni líður vel eftir svona æfingar (eftir þjáninguna) En þetta var góð æfing. Það var svo létt æfing á miðvikudaginn, 12x100m létt á grasi. Í dag voru svo lyftingar um morguninn og 200metra brekkusprettir seinni partinn. Ég veit ekki hvað bíður mín á morgun en ég veit að á laugardaginn verður 10x200metrar með 3mín hvíld á 32sek.
Skólinn gengur ágætlega líka. Ekkert sérstaklega mikið að frétta þar nema að í gærkvöldi var ég í human sexual behavior sálfræði tímanum mínum og, váts! Við horfðum á video af allskonar fæðingum, og ég get ekki sagt annað en Áts! um það. Og eftir það sáum við allskonar myndir af kynsjúkdómum,... og já, í sambandi við það get ég ekkert sagt nema ojts! Ég get ekki alveg líst því nógu vel hvað ég sá enda er það óþarfi. En þetta voru 2 1/2 tími af myndefni sem er ekki gaman að horfa á. Í lok tímans gaf kennarinn öllum smokka, en ég held að þessi tími í sjálfu sér hafi verið nógu góð gettnaðarvörn...ég er ekkert viss um að fólkið sem horfði á þessi video þurfi einu sinni smokka
24. október 2008 klukkan 01:29
Kristín Birna Ólafsdóttir 1 athugasemd
Það gengur allt sinn vanagang hérna í San Diego. Skóli, æfingar, skóli og æfingar. Um helgina gerði ég loksins eithvað out of the ordinary. Ég eyddi helginni í húsnæði vinar míns sem fór ásamt konu sinn í brúðkaup hinum megin í Bandaríkjunum. Hann þurfti einhvern til að passa hundana sína og það gerðum við Mark um helgina. Það var fínt að komast aðeins í burtu, út úr venjulega umhverfinu, og slappa af. Við keyrðum um um á vespunum hans, lékum við hundana, pöntuðum okkur pizzu, horfðum á myndir og þætti, og lágum í sólinni að slappa af. Voða yndælt vikan sem er að byrja verður áhugaverð. Við byrjum á alvöru frjálsíþróttaæfingum í vikunni. Þ.e. löngum sprettum á vellinum, stökk, og kastæfingum. Ég læt vita hvernig það mun ganga :)
20. október 2008 klukkan 02:38
Kristín Birna Ólafsdóttir Engin athugasemd
Æfingar vikunnar hafa verið góðar. Við byrjuðum mánudaginn á löngu götuhlaupi, sem að sjálfsögðu innihélt nokkrar brekkur. Þetta var, eins og flest hlaup sem við gerum, farið eins hratt og við gátum. Á þriðjudagsmorgun var "lyftingaræfing," ég set þetta innan gæsalappa því við erum ekki beint að lyfta (Við byrjum í ólympískum lyftingum eftir nokkrar vikur), heldur að gera þrekhringi með lóðum. Þrekhringurinn í gær tók vel á. Seinni partinn á þriðjudeginum gerðum við grindarhopp og þrístökkshopp á grasi. Það voru 3x8x8 grindarhopp og 5x40m þrístökksopp. Eftir þá æfingu fór ég í lyftingarsalinn aftur með vinkonu minni sem er að æfa sjálfstætt (s.s ekki með skólaliðinu). Ég ákvað að gera æfinguna hennar líka því það leit út fyrir að vera svoo skemmtilegt! Og það var það, æfingin hennar samanstóð af því að draga sleða, velta risastórum dekkjum, lemja sleggu í dekk, osfrv - hörkuæfing !En maður fílaði sig ekki beint á "æfingu." Ég fékk að gjalda fyrir þessa aukaæfingu mína í dag! Ég vaknaði í morgun með meiri harðsperur en ég held ég hafi nokkrum sinnum haft!! Það stoppaði mig samt ekki frá mínum reglulegu miðvikudagsmorguns brimbrettaferð! Ég var komin niðrá strönd klukkan 06.30 og út í sjó ekki löngu seinna. Þar sem það er að koma "vetur" hérna í San Diego eru öldurnar orðnar frekar stórar og óhugnarlegar...En vóts hvað það er skemmtilegt þegar maður stendur upp í stóru öldunum!! Ég átti ansi erfitt með mig í skólanum í dag, ég rétt náði að labba á milli tíma, og þegar það koma að því í að setjast í stóla eða standa upp þurfti ég að hafa mig alla til!!
Sem betur fer var létt æfing í dag. Við hlupum bara 12x100m létt á grasi. Á morgun verður þrek um morguninn og tröppuþrek seinnipartinn: 15x upp 120 þrep, hlaupa niður í hverju þrepi, og má alls ekki stoppa! Gotta love it
09. október 2008 klukkan 01:11
Kristín Birna Ólafsdóttir 4 athugasemdir
KRÍSA! Hvurslags eiginlega er þetta!! Með þessu áfamhaldi held ég hreinlega að ég muni búa áfram hérna í USA. Ég held ég fái mér vinnu hérna og fái laun í dollurum!! Ég er að vinna í því að fá mér vinnu á campus
07. október 2008 klukkan 02:36
Kristín Birna Ólafsdóttir Engin athugasemd
Myndir af lífinu mínu hérna (fyrir utan frjálsar og skólann):
Ég fór fyrir nokkrum vikur í vínsmökkun hérna rétt hjá San Diego. Við keyptum okkur osta til að njóta með víninu:
Stelpurnar sem komu með mér: Mandy, Sherraine, Larnie, og ég
Temecula:
Í dag var barbeque hjá Mandy, það var voða gaman. Við borðuðum Helling og höfðum það gott:
(já ég er orðin dökkhærð aftur :))
Larnie, Dipper og ég :)
Matarslagur:
Þetta eru nóg af myndum í bili. Ætla að koma mér í háttinn. Ég ætla að fara að vinna í því að taka myndir á æfingum, og í skólanum - svo þið getið séð hvernig ég eyði mestum af mínum tíma!
06. október 2008 klukkan 05:23
Kristín Birna Ólafsdóttir 1 athugasemd
Vikan sem var að líða var strembin. Það er samt ótrúlegt hvað manni líður vel eftir svona tímabil þar sem brjálað er að gera. Ég er ótrúlega þreytt, komin með bólur af stressi, og með harðsperur út um allt eftir æfingarnar. Engu að síður hef ég verið dugleg, áorkað það að taka góðar æfingar, og gengið ágætlega í prófunum, svo að þrátt fyrir að vera hálfómöguleg í dag líður mér vel að hafa klárað vikuna vel og með stolti. En nóg um það.
Ég hef ekki gert mikið í dag, ég hef þvegið smá þvott en annars bara horft á sjónvarpið verið löt og borðað það sem ég vil! (s.s. súkkulaði).
Jæja, ætla að snúa mér að bíómyndinni sem ég er að horfa á aftur.
(sorry Sandy - I´ll put pictures up next time I write in here ;))
04. október 2008 klukkan 23:24
Kristín Birna Ólafsdóttir Engin athugasemd
Æfingar ganga alveg ágætlega. Æfingarnar hérna eru orðnar svolítið "þreyttar," Þ. e. ég geri sömu æfingarnar á hverju ári hérna í undirbúningstímabilinu. Þetta eru góðar æfingar og allt það en ég væri til í smá öðruvísi challenge. Við hlupum í dag í klukkutíma eftir að við hituðum upp....Við skokkuðum að mismunandi brekkum og tókum brekkuspretti. Samtals tókum við 5 brekkuspretti sem er ekkert svo mikið, en þetta eru langar brekkur, og þær eru brattar. Það sem gerir æfinguna erfiða er það að við hlaupum/skokkum á milli spretta, skokkið er "hvíldin." Ég veit að fyrir suma (langhlaupara) er skokk sama og hvíld - en í mínum huga og líkama er skokk sko ekki nein hvíld....hehe. En þessi æfing er rosa góð og ég stóð mig bara vel. Þessi vika verður brjálæðisleg skólalega séð. Ég hef ekkert gert um helgina nema lært. Ég er að fara í þrjú próf í vikunni svo að mín verður ekki mikið á netinu eða að blogga. Ég verð að reyna að standa mig í þessum tímum Jæja, nóg komið hér. Ætla að snúa mér aftur að Industrial and organizational psychology lestrinum
30. september 2008 klukkan 04:55
Kristín Birna Ólafsdóttir 5 athugasemdir
heiti Kristín Birna Ólafsdóttir og stunda nám í Sálfrćđi viđ San Diego State University í Kaliforníu. San Diego er alger draumaborg og ég nýt lífsins hérna en ţađ jafnast samt ekkert á viđ Reykjavíkina góđu!